Trúnaðarmenn landvarða 2004

Stjórn Landvarðafélagsins hefur nú gengið frá vali í stöður trúnaðarmanna landvarða sem starfa hjá Umhverfisstofnun. Þær Bára Bryndís Sigmarsdóttir og Eygló Harðardóttir, báðar þrautreyndir landverðir, tóku að sér að gegna þessum störfum í sumar.  Bára Bryndís er með starfsstöð í Jökulsárgljúfrum. Hægt er að ná í hana þar í síma 465-2195 (þjónustumiðstöð), 465-2259 (Ás I)… Continue reading Trúnaðarmenn landvarða 2004

Yfirlandvörður óskast til Kambódíu!

Alþjóðanefnd var að berast auglýsing um tímabundið starf „yfirlandvarðar“ í Cardamomfjöllum í Kambódíu. Starfslýsing og -aðstæður eru íslenskum landvörðum að öllum líkindum frekar framandi. Kíkið endilega á þetta, þó ekki sé nema til að sjá um hvers konar hnúta asískir landverðir þurfa að geta búið.  NÁNAR…

Aðalfundur félagsins verður 25. mars

Aðalfundur Landvarðafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2004 kl. 20:00. Fundarstaður: Galileo, veitingahús, Hafnarstræti 1, Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Stjórn LÍ hvetur alla félaga til að mæta á aðalfundinn. Nánar…

Landvarðaþing 2004

Landvarðafélagið boðar til námsstefnu eða Landvarðaþings dagana 19. og 20. mars í húsnæði Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, fundarsal á efstu hæð. Á dagskránni eru fyrirlestrar um mannleg samskipti, auk hagnýtra námskeiða í sjálfsvörn og rötun. Aðgangur er ókeypis fyrir skuldlausa félaga LÍ. Tilkynna þarf þátttöku fyrir þriðjud. 16. mars. Nánari upplýsingar og dagskrá…

Dagskrá landvarðaþings 2004

Landvarðaþing 2004 Landvarðafélagið boðar til námsstefnu dagana 19. og 20. mars í húsnæði Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, fundarsal á efstu hæð. DAGSKRÁ Föstudagur 19. mars Kl. 16:00 Skráning. Kaffi og með því. Kl. 16:25 Setning. Kl. 16:30 „Samskipti í blíðu og stríðu“. Samskipti við samstarfsmenn, ferðamenn, leiðsögumenn, skálaverði o.fl. eru hluti af störfum landvarða og flóknar… Continue reading Dagskrá landvarðaþings 2004

Myndakvöld 19. febrúar

Stefnt er að myndakvöldi Landvarðafélagsins fimmtudagskvöldið 19. febrúar. Ætlunin er að bregða upp svipmyndum frá Svalbarða og Skotlandi og sýna nokkurra ára gamalt myndband um störf landvarða. Verið er að finna hentugt húsnæði fyrir samkomuna og verður hún  auglýst nánar þegar það er komið á hreint. Takið frá fimmtudagskvöldið 19. feb.!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Landvarðafélagið óskar félögum sínum og velunnurum gæfu og gengis á nýju ári og þakkar samfylgdina á árinu sem leið. Nú eru jólin afstaðin og grár hversdagurinn tekinn við. Jólaglöggið þann 20. desember þótti einstaklega vel heppnað og var mæting framar björtustu vonum. Alls komu um 30 manns í teitið og skemmti fólk sér hið besta,… Continue reading GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Jóla – hvað?

Eins og flestir vita er aðeins þrennt sem getur bjargað geðheilsunni í desembermánuði: • Vera í jólaskapi – sama hvað á dynur • Gera mikið af því að vera slakur og hitta góða félaga • Sötra Jólaglögg – að hætti LANDVARÐARINS!!! JÓLAGLÖGG landvarða býður upp á allt þetta og gott betur á einu bretti!!!Við ætlum… Continue reading Jóla – hvað?

Allsherjar haustfagnaður 29. nóvember

Ágætu félagar, Þá er komið að því: Á laugardaginn kemur, 29. nóv., um kl. 19:00*, verður haustfagnaður Landvarðafélagsins haldinn á Celtic Cross, Hverfisgötu 29, Reykjavík. Fjölmennum á krána og gerum okkur glaðan (haust)dag saman! Staðarval og stund þessa haustfagnaðar tekur mið af tveimur öðrum atburðum sama dag, sem fjöldi landvarða sækir. Fyrr um daginn (kl.… Continue reading Allsherjar haustfagnaður 29. nóvember

Jólaglögg LÍ verður 20. desember

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og nú hefur verið ákveðið að halda jólaglögg félagsins laugardaginn 20. desember. Verið er að athuga með húsnæði og verður nánar tilkynnt um stað og stund þegar það liggur fyrir. Sama gildir um vetrarfagnað sem skemmtinefnd ætlar að efna til að loknum „Töðugjöldum“ UST, sem væntanlega verða… Continue reading Jólaglögg LÍ verður 20. desember

Haustferð fellur niður

Vegna mjög dræmra undirtekta hefur skemmtinefnd ákveðið að hætta við haustferðina sem fara átti laugardaginn 25. október nk. Af sömu ástæðum verður heldur ekkert af grillveislunni sem fyrirhuguð var sama kvöld. Skemmtinefnd hefur þó síður en svo lagt árar í bát og hyggst blása til landvarðasamkomu í höfuðborginni innan tíðar, í þeirri trú að landverði… Continue reading Haustferð fellur niður

Nýr ÝLIR kominn út

Hausthefti fréttabréfsins ÝLIS er nú komið út, stútfullt af áhugaverðu efni. Þar má m.a. nefna grein um sjálfbæra ferðamennsku, frásagnir af landvarðaskiptum milli Íslands og Skotlands sl. sumar, nýjan pistlaflokk sem hlotið hefur nafnið „Reynsluheimur landvarða“ og ádrepuþáttinn „Mín skoðun“ sem nú hefur verið endurvakinn. Gluggaðu í ÝLI og fáðu innsýn í það sem landverðir… Continue reading Nýr ÝLIR kominn út

Haustferð og grillveisla 25. október

Hin árlega haustferð Landvarðafélagsins verður farin laugardaginn 25. október, ef næg þáttaka fæst. Lagt verður af stað kl. 10 frá Select við Vesturlandsveg, sameinað verður í bíla. Farið verður í ca. 4 klst. göngu í nágrenni Reykjavíkur og síðan í sund. Hafið með ykkur nesti, sundföt og góða skapið. Um kvöldið verður grillað en staðurinn… Continue reading Haustferð og grillveisla 25. október

UST auglýsir námskeið í landvörslu

Umhverfisstofnun hefur nú auglýst námskeið í náttúruvernd og landvörslu, sem haldið verður dagana 6. – 30. október nk. Markmið námskeiðsins er samkvæmt auglýsingunni „þjálfun til starfa við þjónustu við gesti og umhverfistúlkun á friðlýstum svæðum.“ Eins og áður verður námskeiðið haldið í Reykjavík og farið þaðan í  fjórar vettvangs- og fræðsluferðir, auk nokkurra daga dvalar… Continue reading UST auglýsir námskeið í landvörslu

Félagsstarf lifnar á ný að loknu ljúfu sumri

Stjórnarfundur var haldinn hjá LÍ þann 2. september, sá fyrsti eftir hlé yfir sumarmánuðina. Til umræðu voru m.a. ákveðin mál sem komu til kasta trúnaðarmanna félagsins í sumar. Meðal hagsmunamála sem huga þarf að á næstunni eru öryggismál landvarða. Nokkrum hugmyndum var velt upp í því sambandi. Fleiri brýn málefni bar á góma og bar… Continue reading Félagsstarf lifnar á ný að loknu ljúfu sumri