Þriðjudaginn 16. janúar kl. 17:00 býður Umhverfisstofnun upp á fyrirlestur um náttúrutúlkun, á 5. hæð í húsnæði stofnunarinnar að Suðurlandsbraut 24. Fyrirlesturinn er liður í fyrirlestraröð UST. Fyrirlesari er Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum. Allt áhugafólk um náttúruvernd er hvatt til að mæta. Sjá nánar á vef Umhverfisstofnunar, www.ust.is.
Category: Fréttir
Frá stjórn félagsins
Heilir og sælir landverðir til sjávar og sveita! Þar sem lítið hefur heyrst frá stjórn félagsins undanfarið ætlum við að bæta úr því og senda ykkur nokkrar línur. Þó svo að stjórnin fundi um hin ýmsu mál þá vill gleymast að miðla þeim áfram. Framhald pistils frá stjórn… [PDF 303k]
Jólaglöggið verður 26. des
Landverðir nær og fjær! Merkið strax við 16. desember á jóladagatalinu því þá fer fram hið sívinsæla jólaglögg landvarða að Reynimel 68 (kjallara). Glöggið hefst kl. 21 (þess er þó ekki krafist að gestir mæti stundvíslega). Gestir eru beðnir um að hafa með sér 800 kr. til að leggja í púkk fyrir veitingum (í staðinn… Continue reading Jólaglöggið verður 26. des
Haustferðin frestast til 26. október
Af óviðráðanlegum orsökum verður haustferð landvarða frestað um eina viku og verður farið laugardaginn 21. október í stað 14. október. (Urriðagangan er samt sem áður á dagskrá hjá þjóðgarðinum þann 14. (sjá http://www.thingvellir.is/dagskra/nr/349) og öllum frjálst að mæta í hana.) Guðrún S. Kristinsdóttir, yfirlandvörður á Þingvöllum, tekur á móti okkur kl. 14:00 og fer með okkur… Continue reading Haustferðin frestast til 26. október
Haustferð landvarða
ATHUGIÐ: Af óviðráðanlegum orsökum frestast haustferðin um eina viku, farið verður 21. október í stað 14. okt., sjá aðra frétt. Þessi frétt er því ómark. (11.10.2006) Landverðir, takið frá laugardaginn 14. október! Það er komið að hinni sívinsælu haustferð landvarða. Að þessu sinni verður skundað á Þingvöll þar sem boðið verður upp á sérstaka fræðslugöngu um… Continue reading Haustferð landvarða
Dagur hinna villtu blóma
Dagur hinna villtu blóma hefur verið haldinn nokkur undanfarin ár á öllum Norðurlöndunum. Í ár ber hann upp á sunnudaginn 18. júní. Þann dag er leitast við að standa fyrir tveggja stunda plöntuskoðunarferðum fyrir almenning sem víðast um landið. Landverðir sem kynnu að vilja taka þátt í þessum degi og bjóða upp á plöntuskoðun á… Continue reading Dagur hinna villtu blóma
Íslandsvinagangan 27. maí
Vakin er athygli á Íslandsvinagöngunni sem verður laugardaginn 27. maí í miðbæ Reykjavíkur. Gengið verður af stað kl. 13 frá Hlemmi og endað á Austurvelli þar sem fjölbreytt dagskrá tekur við. Íslandsvinagangan er fyrir alla þá sem vilja standa fyrir rétti sínum og mótmæla stóriðju- og virkjanastefnu stjórnvalda. Takmarkið er að fylla miðbæinn af fólki. Samstaða í verki… Continue reading Íslandsvinagangan 27. maí
Menntamál landvarða, umræðufundur
Landvarðafélagið boðar til fundar um menntamál landvarða fimmtudaginn 30. mars í st. 202 í Odda, Háskóla Íslands. Fundurinn hefst kl. 20:00. Umræðufundur um menntamál landvarða Nú í vetur hefur staðið yfir vinna við endurbætur og breytt fyrirkomulag á landvarðanámskeiðinu sem Umhverfisstofnun (UST) hefur haldið reglulega fyrir verðandi landverði. Skipuð var þriggja manna nefnd til að… Continue reading Menntamál landvarða, umræðufundur
Aðalfundur L.Í. verður 10. apríl
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands verður haldinn mánudaginn 10. apríl 2006 kl. 18:00 í Litlu Brekku (veislusalur Lækjabrekku), Bankastræti 2, Reykjavík. Skráðum félögum var sent bréflegt fundarboð með löglegum fyrirvara. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður skýrt frá ferð tveggja félaga á Norrænt landvarðaþing á síðasta ári. Léttar veitingar í fundarhléi. Dagskrá fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf (þ.m.t. lagabreytingar) og önnur mál.… Continue reading Aðalfundur L.Í. verður 10. apríl
Landvarðanámskeiði senn að ljúka
Nú stendur yfir landvarðanámskeið á vegum Umhverfisstofnunar. Er það mál manna að nemendahópurinn sé að þessu sinni einkar frambærilegur og því senn von á prýðilegri viðbót í landvarðahópinn. Í byrjun mánaðarins var haldið í Skaftafell þar sem náttúran var túlkuð af miklum móði. Siggi bóndi á Hnappavöllum í Öræfum kíkti í heimsókn og tók meðfylgjandi… Continue reading Landvarðanámskeiði senn að ljúka
Fjölmenn sendinefnd sækir 5. heimsþing landvarða
Íslenskir landverðir ætla heldur betur að hressa upp á alþjóðatengslin í ár. Hvorki meira né minna en þrettán manna hópur hyggst sækja alþjóðaráðstefnu landvarða í Stirling í Skotlandi 14. – 21. júní nk. Mun þetta verða ein fjölmennasta sendinefndin á þinginu. Yfirskrift ráðstefnunnar er People and Place – The Natural Connection og verður m.a. fjallað um hlutverk og… Continue reading Fjölmenn sendinefnd sækir 5. heimsþing landvarða
Landvarðanámskeið auglýst
Umhverfisstofnun hefur nú auglýst að landvarðanámskeið verði haldið í febrúar og mars á þessu ári. Nánar tiltekið hefst námskeiðið 9. febrúar og lýkur 26. mars. Kennt verður í fjarkennslu að hluta. Námskeiðsgjald er kr. 75.000. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi og forgang um landvörslustörf á vegum UST. Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2006. Nánari upplýsingar og… Continue reading Landvarðanámskeið auglýst
Bráðum koma blessuð jólin…
Þann 16. desember kl. 20:00 ætla landverðir að hittast og koma sér og öðrum í jólaskap eins og þeim einum er lagið. Til stóð að hittast í heimkynnum Grýlu og dreypa á heimalöguðu jólaglöggi að hennar hætti. En hún var ekki tilbúin með glöggið og svo er allt í drasli hjá henni, og reyndar hjá öllum… Continue reading Bráðum koma blessuð jólin…
Lokaútkall í Skotlandsferð
Kæru landverðir!Nú er lokaútkall til þeirra sem ætla með í landvarðaferð aldarinnar. Eins og áður hefur verið auglýst er förinni heitið á alheimsráðstefnu landvarða, sem haldin verður í Skotlandi 14. til 21. júní 2006. Nú þegar hafa nokkrir sprækir landverðir staðfest þátttöku en spurningin er: vilt þú bætast í hópinn? Nánari upplýsingar hjá fröken formanni,… Continue reading Lokaútkall í Skotlandsferð
Haustferð fellur niður vegna vetrarríkis!
Fyrirhuguð haustferð í Laka 8. október fellur niður vegna snjóa og slæmrar færðar. Veturinn er óvenju snemma á ferðinni á hálendinu og ekki vogandi að leggja í ferðalög um fáfarnar slóðir við svo búið. Því miður tókst ekki að skipuleggja ferð á annan áfangastað þessa helgina, svo ekki er um annað að ræða en að fella ferðina… Continue reading Haustferð fellur niður vegna vetrarríkis!