Aðalfundur L.Í. verður 10. apríl

Aðalfundur Landvarðafélags Íslands verður haldinn mánudaginn 10. apríl 2006 kl. 18:00 í Litlu Brekku (veislusalur Lækjabrekku), Bankastræti 2, Reykjavík. Skráðum félögum var sent bréflegt fundarboð með löglegum fyrirvara. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður skýrt frá ferð tveggja félaga á Norrænt landvarðaþing á síðasta ári. Léttar veitingar í fundarhléi.

Dagskrá fundarins:

Venjuleg aðalfundarstörf (þ.m.t. lagabreytingar) og önnur mál.

1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra.
2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá.
4. Lagabreytingar.
5. Ákvörðun félagsgjalda.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosningar í nefndir og kosning endurskoðenda.
8. Önnur mál.

Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en 27. mars.

Úr stjórn félagsins ganga að þessu sinni Elísabet Kristjánsdóttir, formaður, Áki Jónsson, gjaldkeri, Dagmar Sævaldsdóttir, meðstjórnandi (hefur þegar sagt sig úr stjórn) og Dagný Indriðadóttir, varamaður (meðstjórnandi sem staðgengill fyrir Dagmar).

Þeir félagar sem vilja gefa kost á sér til ábyrgðar-og nefndarstarfa, eða koma með ábendingar, eru hvattir til að hafa sem fyrst samband við stjórnina. Netfang stjórnar er: landverdir@landverdir.is, en einnig má koma ábendingum á framfæri símleiðis, t.d. í s. 865-1188 (Elísabet) eða 698-4936 (Dagný).

Félagar eru eindregið hvattir til að taka mánudagskvöldið 10. apríl frá og fjölmenna á aðalfundinn.
Léttar veitingar á vægu verði í boði í fundarhléi, ásamt áhugaverðu innleggi um Skandinavíska ráðstefnu landvarða sem  Hanna Kata og Rebekka sóttu fyrir nokkru síðan.

Stjórnin

Fundarboð á PDF-formi