Í byrjun nóvember síðastliðinn lögðu tveir íslenskir landverðir í langferð til Afríku til að taka þátt í alþjóðaráðstefnu landvarða í Tanzaníu. Ráðstefnan var haldin við rætur Kilimanjaro sem er hæðsta fjall Afríku, á Hótel Ngudorto Mountain Lodge í Arusha. Alls 264 landverðir frá 40 löndum mættu á ráðstefnuna. Skipulagning ráðstefnunnar var í höndum International Ranger… Continue reading Alþjóðaráðstefna Landvarða í Tanzaníu 2012
Category: Fréttir
Styrkir vegna Tanzaníufarar
Nú styttist óðum í Alþjóðaráðstefnu landvarða í Tanzaníu en hún fer fram 4. – 9. nóvember nk. Skráningarfrestur á ráðstefnuna var framlengdur en hægt er að finna allar upplýsingar um ráðstefnuna og skráningu á hana hér á vefsíðu ráðstefnunnar. Umhverfisráðuneytið veitti Landvarðafélaginu styrk til að senda fulltrúa á ráðstefnuna og Landvarðafélagið mun einnig styrkja ráðstefnufara.… Continue reading Styrkir vegna Tanzaníufarar
Viðburðir á Alþjóðadegi landvarða
Alþjóðadagur landvarða er 31. júlí ár hvert en fyrsti alþjóðadagur landvarða var haldinn 31. júlí 2007 á 15 ára afmæli Alþjóðasamtaka landvarða IRF (International Ranger Federation). Dagurinn er haldinn til að minnast þeirra mörgu landvarða sem hafa látist eða slasast við skyldustörf. Einnig er þessi dagur haldinn hátíðlegur til að fagna starfi landvarða um allan… Continue reading Viðburðir á Alþjóðadegi landvarða
Aðalfundur Landverndar í Nauthóli 12. maí kl. 10-13
Frétt frá Landvernd:Aðalfundur Landverndar árið 2012 verður haldinn í Nauthóli við Nauthólsvík laugardaginn 12. maí og hefst kl. 10, en húsið verður opnað 9:45. Dagskrá fundarins fer hér á eftir og lagabreytingatillögur stjórnar félagsins sem hún leggur fram á fundinum má nálgast hér. Núgildandi lög félagsins má finna hér á vefsíðu samtakanna. Sérstök athygli er vakin… Continue reading Aðalfundur Landverndar í Nauthóli 12. maí kl. 10-13
Náttúruverndarþing laugardaginn 28. apríl í Háskólanum í Reykjavík
Náttúruverndarhreyfingin á Íslandi efnir til náttúruverndarþings 2012 í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. apríl kl. 10-16:30. Fjallað verður um stöðu rammaáætlunar, ferðaþjónustu, lýðræði, friðlönd og skipulag og starf náttúruverndarfélaga. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Þeir sem ætla að borða hádegismat á þinginu (1.990 kr.) eru beðnir um að skrá sig fyrir 25. apríl á… Continue reading Náttúruverndarþing laugardaginn 28. apríl í Háskólanum í Reykjavík
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2012
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2012 verður haldinn á Litlubrekku (veislusalur Lækjarbrekku), Bankastræti 2, Reykjavík, þriðjudaginn 10. apríl kl: 19.00. DAGSKRÁ Venjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum félagsins 1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá4. Lagabreytingar5. Ákvörðun félagsgjalda6. Kosning stjórnar7. Kosning í nefndir og kosning… Continue reading Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2012
Landvarðaferð um Reykjanes með Óskari Sævarssyni
Fræðslu- og skemmtinefnd Landvarðafélagsins blæs til ferða um Reykjanesið laugardaginn 17. mars með Óskari Sævarssyni, reyndum leiðsögumanni og landverði, sem þekkir svæðið mjög vel. Hugmyndir eru uppi um að gera Reykjanesið að jarðvangi (geopark) og verður fróðlegt að skoða svæðið útfrá þeim hugmyndum. Lagt verður upp frá húsnæði Umhverfisstofnnar á Suðurlandsbraut 24 og er mæting… Continue reading Landvarðaferð um Reykjanes með Óskari Sævarssyni
Samkomulag milli Lbhí og Umhverfisstofnunar um landvarðaréttindi
Af vef Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri: Þann 7. febrúar undirrituðu Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar og Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, samstarfssamning um fræðslu og menntun á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Markmið samstarfsins er að efla menntun landvarða enda er menntun landvarða hluti af námsbraut Landbúnaðarháskóla Íslands í Náttúru- og umhverfisfræðum með áherslu á þjóðgarða… Continue reading Samkomulag milli Lbhí og Umhverfisstofnunar um landvarðaréttindi
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir landvörslustörf 2012
Af vef Vatnajökulsþjóðgarðs: Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir að ráða fólk í fjölbreytt sumarstörf, þ.á.m. landvörslu. Störfin eru flest á tímabilinu frá byrjun júní til loka ágúst. Nokkur störf eru þó til lengri (maí – september) eða skemmri (júlí – ágúst) tíma. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Starfsgreinasambands Íslands. Bæði konur og karlar eru hvött… Continue reading Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir landvörslustörf 2012
Umhverfisstofnun auglýsir landvörslustörf 2012
Af vef Umhverfisstofnunar: Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum sumarið 2012 á eftirtalin svæði: Þjóðgarðinn Snæfellsjökul, verndarsvæði við Mývatn og Laxá, Suðurland, Vesturland, sunnanverða Vestfirði og Miðhálendi. Störf landvarða felast m.a. í að fylgjast með að hvorki séu brotin ákvæði friðlýsingar svæðis né lög um náttúruvernd. Landverðir hafa eftirlit með umgengni á svæðunum, umsjón með vöktun umhverfisþátta,… Continue reading Umhverfisstofnun auglýsir landvörslustörf 2012
Landvarðanámskeið 2012
Af vef Umhverfisstofnunar: Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður á vormánuðum 2012. Jón Björnsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun sem hefur umsjón með Hornstrandafriðlandinu sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þættir námskeiðum. Námskeiðið spannar rúmlega 100 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 16. febrúar og lýkur 11. mars. Nemendur sem lokið hafa… Continue reading Landvarðanámskeið 2012
Umhverfisþing 14. október 2011
Af vef umhverfisráðuneytis: Umhverfisráðherra boðar til VII. Umhverfisþings 14. október 2011 á Hótel Selfossi. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um náttúruvernd, m.a. verður kynnt hvítbók sem ætlað er að leggja grunn að nýjum náttúruverndarlögum. Í málstofum eftir hádegi verður fjallað um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar, vísindaleg viðmið fyrir náttúruvernd og gildi náttúruverndar fyrir útivist og… Continue reading Umhverfisþing 14. október 2011
Alþjóðaráðstefna landvarða í Tansaníu 2012
Alþjóðaráðstefna landvarða verður haldin í Tansaníu 4.-9. nóvember 2012. Tansanía er ríki í Austur-Afríku, um 1.000 km2 að stærð og íbúar um 44 milljónir. Í Tansaníu er að finna gríðarlega fjölskrúðuga náttúru og dýralíf og eru um 40% landsins þjóðgarðar og friðlönd, meðal þeirra hinn þekkti Serengeti þjóðgarður. Hæsta fjall Afríku, Kilimanjaro er einnig í… Continue reading Alþjóðaráðstefna landvarða í Tansaníu 2012
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2011
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2011 verður haldinn á Veitingahúsinu Horninu (kjallara), Hafnarstræti 15, miðvikudaginn 6. apríl kl: 19:00. DagskráVenjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum félagsins1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá4. Lagabreytingar5. Ákvörðun félagsgjalda6. Kosning stjórnar7. Kosning í nefndir og kosning endurskoðenda8. Önnur mál
Verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð þann 28. mars sl. Á vef umhverfisráðuneytis kemur m.a. fram að Vatnajökulsþjóðgarður sé umfangsmesta verkefni á sviði náttúruverndar sem ráðist hefur verið í hérlendis en hann nær yfir 13% landsins og er stærsti þjóðgarður Evrópu. Stjórnunar- og verndaráætlunin felur í sér stefnu, markmið og framtíðarsýn þjóðgarðsins… Continue reading Verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð