Verndun víðernisupplifunar á áfangastöðum hálendisins

Í haust gerði félagi í Landvarðafélagi Íslands skólaverkefni um stjórnun á friðlýstum svæðum. Liður í því var könnun á meðal landvarða þar sem spurt var um ýmis atriði er tengjast landvörslu og hegðun ferðamanna. Nú er komin samantekt úr könnuninni sem er hér að neðan.

Landvörður vikunnar, 10. ágúst – 16. ágúst

Þar með lýkur landverði vikunnar þetta sumarið. Við höfum stoppað víða á þessari yfirferð yfir svæði og landverði þessara þriggja stofnanna sem hvað duglegastar eru að halda úti landvörslu hér á Íslandi. Landverðir vikunnar hafa verið mismunandi eins og þeir voru nú margir en vissulega er mikil tenging á milli þeirra og svo sannarlega svipaður… Continue reading Landvörður vikunnar, 10. ágúst – 16. ágúst

Landvörður vikunnar, 3. – 9. ágúst

Vonandi áttu lanverðir góðan Alþjóðlegan dag landvarða, síðastliðinn föstudag. Eftir hann byrjaði ágúst mánuður og má því með sanni segja að tekið er að líða á seinni hluta þessa sumars. Bráðlega fara landverðir að detta af svæðunum sínum og halda í það sem þeir gera á veturna. En landvörður vikunnar heldur áfram og að þessu… Continue reading Landvörður vikunnar, 3. – 9. ágúst

Landvörður vikunnar, 20. – 26. júlí

Skartandi sínum fögrustu freknum taka útiteknir landverðir vel á móti seinni hluta þessa sumars. Aldrei hafa verið hér jafn margir ferðamenn og sjaldan hefur landvörðurinn verið jafn mikilvægur og ómissandi fyrir náttúruna. Sum okkar vakna af værum svefni með snævi þaktar auðnir blasandi við úr dyrakarminum meðan aðrir blóta sólinni í hljóði og biðja um… Continue reading Landvörður vikunnar, 20. – 26. júlí

Landvörður vikunnar, 13. – 19. júlí

Frá einum Sigurði til annars. Frá Vatnajökulsþjóðgarði og yfir á Umhverfisstofnun.   Landvörður vikunnar er Sigurður Jóhannson. Hann starfaði við Mývatn fram að 9. júlí en er nú kominn í Snæfellsjökulsþjóðgarð.

Landvörður vikunnar, 6. – 12. júlí

Að lokinni einnar mestu ferðahelgi ársins hljóta margir landverðir að vera úrvinda. Þeir sem fengu að vera í fríi jafnvel úrvinda eftir ferðir og göngur, meðan þeir sem stóðu vaktina úrvinda eftir að taka á móti þeim órafjölda gesta og gangandi sem sóttu svæði þeirra heim. Eins og áður byrjum við líka nýja viku á… Continue reading Landvörður vikunnar, 6. – 12. júlí

Landvörður vikunnar, 29. júní – 5. júlí

Þá er komið að mánaðarmótum. Hápunktur sumars nálgast og krökt er af ferðafólki víðs vegar um landið. Landverðir vita varla hvaðan á þeim stendur veðrið en taka þessu vonandi með yfirvegaðri ró. En að landverði vikunnar; að þessu sinni snúum við okkur aftur að Vatnajökulsþjóðgarði.   Þessa vikuna er Sylvía Dröfn Jónsdóttir landvörður vikunnar og… Continue reading Landvörður vikunnar, 29. júní – 5. júlí

Landvörður vikunnar, 22. – 29. júní

Til að finna næsta landvörð höldum við til fyrsta þjóðgarðs Íslands. Þar sem Grímur Geitskör vildi geyma svo hið dýra þing fyrir rúmlega 1000 árum og í dag ganga hátt í 2000 ferðamenn dag hvern niður Almannagjánna. Þessa vikuna er Eva Dögg Einarsdóttir landvörður vikunnar. Eva starfar sem landvörður í Þjóðgarðinum á Þingvöllum og er… Continue reading Landvörður vikunnar, 22. – 29. júní

Draumur orðin að veruleika

Hugmynd að skiptiheimsókn millli landvarða í Rúmeníu og á Íslandi fæddist í Rúmeníuferð Þórunnar Sigþórsdóttur sumarið 2013 þar sem hún var á ferðalagi með Mihai Gligan formanni Landvarðafélagsins í Rúmeníu. Honum kynntust Íslendingar sem fóru á Evrópuráðstefnu landvarða í Rúmeníu árið 2007. Úr varð umsókn um styrk frá NGO fund  sem var samþykktur og er… Continue reading Draumur orðin að veruleika

Landvörður vikunnar, 15. – 21. júní

Nú ættu flestir landverðir að vera komnir til vinnu og mörg svæðin öll að lifna við af gestum og gróðri. Sum hafa þó ekki ennþá fengið vott af sumri til sín og eru jafnvel ennþá klædd hvítri kápu. Þessa vikuna lítum við á eitt slíkt svæði til landvarðar sem starfar á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.   Þessa… Continue reading Landvörður vikunnar, 15. – 21. júní

Landvörður vikunnar, 8. – 14. júní

Nú er önnur vika júní mánaðar hafin og tími til að útnefna nýjan landvörð vikunnar. Frá Skaftafelli horfum við þvert yfir landið og alla leið á Vestfirði. Að þessu sinni er það landvörður úr röðum Umhverfisstofnunnar sem tekur á móti okkur.     Landvörður vikunnar, 8. til 14. júní, er Dagný Bryndís Sigurjónsdóttir. Hún starfar… Continue reading Landvörður vikunnar, 8. – 14. júní

Landvörður vikunnar, 1. – 7. júní

Nú er sumarið að hefjast og landverðir farnir að skjóta upp kollinum í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum. Til þess að tengja betur saman landverði á mismunandi svæðum höfum við í stjórninni ákveðið að birta stutta umfjöllun í formi spurninga og svara um einn landvörð í hverri viku í sumar. Við stefnum á að þessi… Continue reading Landvörður vikunnar, 1. – 7. júní

Alþjóðaráðstefna Landvarða í Tanzaníu 2012

Í byrjun nóvember síðastliðinn lögðu tveir íslenskir landverðir í langferð til Afríku til að taka þátt í alþjóðaráðstefnu landvarða í Tanzaníu. Ráðstefnan var haldin við rætur Kilimanjaro sem er hæðsta fjall Afríku, á Hótel Ngudorto Mountain Lodge í Arusha. Alls 264 landverðir frá 40 löndum mættu á ráðstefnuna. Skipulagning ráðstefnunnar var í höndum International Ranger… Continue reading Alþjóðaráðstefna Landvarða í Tanzaníu 2012

Samráðsfundur hjá UST vegna utanvegaaksturs

Þriðjudaginn 7. september var haldinn á vegum Umhverfisráðuneytisins opinn samráðsfundur vegna utanvegaaksturs – í tilefni af því að ráðuneytið skipaði nýlega, í samráði við samgönguráðuneytið, starfshóp sem setja á fram tillögur (fyrir 1. desember 2004) um það hvernig hægt sé að bregðast við þessu sívaxandi vandamáli. Starfshópinn skipa þau Árni Bragason UST, Eydís Líndal Finnbogadóttir… Continue reading Samráðsfundur hjá UST vegna utanvegaaksturs