Þarf að bæta ímynd landvarða?

MÍN SKOÐUN Upphaflega birt í fréttabréfinu Ýli í október 2002. Landverðir hafa stundum rætt það sína á milli að bæta þyrfti ímynd þeirra, jafnvel að þörf sé á auglýsingaherferð í þeim tilgangi. En hafa landverðir slæma ímynd, eða er það einhver klisja sem þeir eru sjálfir duglegastir að viðhalda? Sé þessi slæma ímynd hinsvegar til… Continue reading Þarf að bæta ímynd landvarða?

„Klípusögur“

Hér fara á eftir nokkrar sögur af því sem landverðir hafa lent í í gegnum tíðina. Settu þig í spor landvarðar: Þú kemur að fólki sem hefur lagt bíl sínum í vegarkanti og borið dótið sitt niður að lítilli tjörn og tjaldað þar á bakkanum. Þú ert vörður á friðlýstu svæði og því ferð þú… Continue reading „Klípusögur“

Mín skoðun

MÍN SKOÐUN Upphaflega birt í fréttabréfinu Ýli í janúar 2002. Mér dettur stundum í hug hvort við ættum ekki að hætta við umhverfismatið, leggja niður Náttúruverndina og loka Umhverfisráðuneytinu. Stundum, reyndar býsna oft. Mér dettur þetta einkum í hug þegar ég sé hvað nálgun ríkisvaldsins í umhverfismálum er oft ofboðslega laus við að vera fagleg.… Continue reading Mín skoðun

Sönn saga úr Mývatnssveit

Einn góðan veðurdag sumarið 2000 mættu tveir landverðir til vinnu að morgni dags eins og venjulega. Þegar þeir mættu í gestastofuna um morguninn fengu þeir upphringingu og þeim sagt að húsbíll væri staddur nálægt Grímsstöðum í Mývatnssveit. Landverðirnir flýttu sér af stað til þess að tilkynna fólkinu að í Mývatnssveit væri óheimilt að gista í… Continue reading Sönn saga úr Mývatnssveit

Að leyfa eða ekki leyfa – það er höfuðverkurinn

Það er aldrei auðvelt að taka ákvarðanir þegar landverðir verða varir við framferði sem þeim þykir óeðlilegt. Afstaða þeirra er byggð á þekkingu og reynslu og þeir gera sér oftast betur grein fyrir afleiðingum hegðunarinnar, til lengri tíma litið, en sá sem sýnir hana af sér. Landverðinum blöskrar oft alveg hugsunarleysi þeirra sem brjóta af… Continue reading Að leyfa eða ekki leyfa – það er höfuðverkurinn

Hugvekja – það er vor

Upphaflega birt í fréttabréfinu Ýli í maí 2001. Landverðir halda til starfa sinna, sumir á slóðum sem þeir óskuðu sjálfir, aðrir þar sem starfstími og aðstæður henta. Öll væntum við þess að sumarið verði gjöfult á ánægjuleg samskipti náttúru og manna. Sumir kunna að þrá ys og þys, en sennilega vilja fleiri hóflegan fjölda ferðamanna… Continue reading Hugvekja – það er vor