Entrum för naturväglednings seminarier hösten 2009 äger rum i Tyresta, Stockholm 12/10, Ronneby 22-23/10, Uddevalla 5/11 och Östersund 17/11. Tips och råd från erfarna inspiratörer.Överblick över naturvägledning i Sverige.Historisk och internationell resa i naturvägledningens värld.Workshop om utveckling av naturvägledning lokalt och regionalt. Seminarierna vänder sig till alla som arbetar med naturvägledning – att förmedla kunskap… Continue reading Visa natur möjligheter och utmaningar
Category: Fréttir
Haustþing Ríkis Vatnajökuls, okt 2009
Ágætu landverðir ! Viljum við vekja athygli ykkar á Haustþingi Ríkis Vatnajökuls, sem haldiðverður í Nýheimum á Höfn 21.-22. október nk. Fyrri daginn (miðvikudag)verður opið málþing um umhverfis- og skipulagsmál í ferðaþjónustu á Íslandi,um kvöldið verður uppskeruhátíð Ríkis Vatnajökuls, og á fimmtudag verðurunnið með Ríki Vatnajökuls í vinnuhópum.
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2008
verður haldinn að Lækjarbrekku, Bankastræti 2, Reykjavík mánudaginn 6.apríl 2009, kl: 19:00 DAGSKRÁVenjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum félagsins1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá4. Lagabreytingar5. Ákvörðun félagsgjalda6. Kosning stjórnar7. Kosning í nefndir og kosning endurskoðenda8. Önnur mál Einar Ásgeir Sæmundssen fræðslufulltrúi Í Þjóðgarðinum… Continue reading Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2008
Nýtt tölublað af The Thin Green Line
Nýtt tölublað af The Thin Green Line, fréttabréfi alþjóðasamtaka landvarða IRF er komið út. Þar er m.a. að finna upplýsingar um fyrirhugaða alheimsráðstefnu landvarða í Bólivíu í nóvember.
Sumarstörf 2009 – Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður
Nú er að kýla á umsókn um sumarstarf! Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður auglýsa nú eftir landvörðum og öðrum sumarstarfsmönnum sumarið 2009. Almennt er miðað við að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og þeir sem lokið hafa landvarðanámskeiði ganga fyrir um störf. Lengd ráðningartímabils er mismunandi eftir svæðum. Umsóknarfrestur er til 30. mars 2009. Nánar um… Continue reading Sumarstörf 2009 – Umhverfisstofnun og Vatnajökulsþjóðgarður
Stefnumót um akstur utan vega
Stofnun Sæmnudar fróða og umhverfisráðuneytið boða til stefnumóts um utanvegaakstur 24. september 2008 kl. 12:00-13:30 í fundarsal Þjóðminjasafnsins. Yfirskrift stefnumótsins er Úti að aka í náttúru Íslands. Erindi flytja Ólafur Arnar Jónsson frá Umhverfisstofnun og Þorsteinn Víglundsson frá umhverfisnefnd ferðaklúbbsins 4 x 4. Umræður að erindum loknum og allir velkomnir!
Alþjóðadagur landvarða 31. júlí
Í dag 31. júlí er alþjóðadagur landvarða haldinn í 2. sinn og bjóða landverðir upp á göngur og ýmsa fræðslu víða um land í tilefni dagsins. Til hamingju með daginn landverðir!
Nýr Ýlir kominn út
Ýlir er vaknaður af værum blundi, þökk sé ritnefnd Landvarðafélagsins. Kynnið ykkur fjölbreytt og forvitnilegt efni fréttabréfsins hér.
Evrópuráðstefna í Ungverjalandi
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á 2. Evrópuráðstefnu landvarða sem haldin verður í Ungverjalandi 14.-20. september 2008. Þátttaka er góð og hafa þónokkrir skráð sig en skráningu líkur í þessari viku. Í fyrra fóru 11 landverðir á fyrstu Evrópu ráðstefnuna sem haldin var í Rúmeníu sem var mjög áhugaverð og gaman… Continue reading Evrópuráðstefna í Ungverjalandi
Málþing um stjórnun verndaðra svæða
Stjórnun verndaðra svæða Málþing í Öskju Náttúrufræðahúsi, stofu 132, Sturlugötu 7 fimmtudaginn 29. maí kl. 13-17 Dagskrá 13:00 Setning málþings 13:10 Upphaf þjóðgarða og gildi þeirra í fortíð, nútíð og framtíð Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir þjóðgarðsvörður Jökulsárgljúfrum 13:40 Verndarviðmið Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna, IUCN Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor í grasafræði, Háskóla Íslands 13:55 Áherslubreytingar í stjórnun náttúruverndarsvæða Karl… Continue reading Málþing um stjórnun verndaðra svæða
Evrópuráðstefna landvarða í Ungverjalandi í haust
Evrópuráðstefna landvarða verður haldin í Ungverjalandi 14.-20. september 2008. Dagskrána má finna á vefsíðu ráðstefnunnar hér. Eftir ráðstefnuna verður boðið upp á 2 ferðir Northern mountain range a og Lake Balaton. Fyrir ráðstefnuna verður boðið upp á skoðunarferð um höfuðborgina Búdapest og dagskrá hennar má finna hér. We prepare two post-seminar programmes, the details will be available… Continue reading Evrópuráðstefna landvarða í Ungverjalandi í haust
Vorfagnaður landvarða 17. maí
Nú fer alveg að koma að því… vorfagnaður landvarða verður eftir 2 daga og væntanlega bíða allir í ofvæni. Gleðin hefst kl. 16:00 og verður í Þjóðhátíðarlundinum í Heiðmörk (sjá kort hér). Við viljum hvetja ykkur til að taka alla fjölskylduna með, en við ráðgerum að hafa eitthvað sem hæfir öllum aldurshópum, alla vega svona fram… Continue reading Vorfagnaður landvarða 17. maí
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir eftir sumarstarfsfólki
Vatnajökulsþjóðgarður hefur auglýst eftir starfsfólki til sumarstarfa. Ráðið verður í eftirfarandi stöður: Skaftafell: Landverðir, starfsfólk í móttöku og upplýsingagjöf, á tjaldsvæði, í ræstingu og almenn störf.Jökulsárgljúfur: Landverðir, starfsfólk í móttöku og upplýsingagjöf, á tjaldsvæði, í ræstingu og almenn störf.Herðubreiðarlindir og Dreki: Landverðir og skálaverðir í samvinnu við Ferðafélag Akureyrar.Hvannalindir, Kverkfjöll og Snæfell: Landverðir og skálaverðir… Continue reading Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir eftir sumarstarfsfólki
Landvarsla 2008 – UST
Umhverfisstofnun auglýsir eftir starfsfólki til landvörslu á eftirtöldum stöðum sumarið 2008: Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, Friðlandi að Fjallabaki, Mývatnssveit, Vatnsfirði, Gullfossi og Geysi, Dyrhólaey, Hornströndum og friðlýstum svæðum á Vesturlandi (svæðalandvarsla). Náttúruverndarsvæðin lúta öll stjórn Umhverfisstofnunar en ýmist er starfsfólk eitt við landvörslu eða undir stjórn yfirlandvarðar eða þjóðgarðsvarðar viðkomandi svæðis. Störf landvarða á framangreindum svæðum felast… Continue reading Landvarsla 2008 – UST
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum óskar eftir að ráða landverði til starfa sumarið 2008. Um er að ræða umsjón og eftirlit í þjóðgarðinum, þátttöku í fræðslu ásamt vinnu í afgreiðslu þjóðgarðsins á Leirum og fræðslumiðstöð á Haki. Umsækjendur skulu hafa lokið námskeiði í landvörslu eða hafa reynslu af sambærilegum störfum. Góð tungumálakunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum… Continue reading Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum