Málþing um stjórnun verndaðra svæða

Stjórnun verndaðra svæða

Málþing í Öskju Náttúrufræðahúsi, stofu 132, Sturlugötu 7

fimmtudaginn 29. maí kl. 13-17

Dagskrá

13:00      Setning málþings

13:10      Upphaf þjóðgarða og gildi þeirra í fortíð, nútíð og framtíð

Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir þjóðgarðsvörður Jökulsárgljúfrum

13:40    Verndarviðmið Alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna, IUCN

Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor í grasafræði, Háskóla Íslands

13:55    Áherslubreytingar í stjórnun náttúruverndarsvæða

Karl Benediktsson prófessor í landfræði, Háskóla Íslands

14:15    Stjórnun verndaðra svæða á Íslandi

14:30    Kaffihlé

15:00    Stjórnun ferðaþjónustu í þjóðgörðum á Nýja-Sjálandi

Einar Á. E. Sæmundsen fræðslufulltrúi, Þjóðgarðinum á Þingvöllum

15:20    Vatnajökulsþjóðgarður – tilurð og tækifæri

Anna Kristín Ólafsdóttir formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs

15:35    Frá Tikkurila til Raja-Joseppi: Innri stjórnun þjóðgarða í Finnlandi

– vangaveltur um Ísland
Guðrún Kristinsdóttir yfirlandvörður, Þjóðgarðinum á Þingvöllum

15:50     Umræður

17:00     Þingslit

Fundarstjórar:

Brynhildur Davíðsdóttir dósent í umhverfis- og auðlindafræði, HÍ
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Stofnun Sæmundar fróða, HÍ og formaður Félags
umhverfisfræðinga á Íslandi

Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Málþingið er haldið í samvinnu fjölmargra aðila sem koma að stjórnun og
rannsóknum á vernduðum svæðum á Íslandi. Að málþinginu standa Stofnun
Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, Fræðasetur HÍ á Hornafirði, námsbraut HÍ
í umhverfis- og auðlindafræði, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Umhverfisstofnun,
Vatnajökulsþjóðgarður og Félag umhverfisfræðinga á Íslandi.