Landvarðafélag Íslands stendur fyrir opnu málþingi um náttúruvá og landvörslu. Málþingið mun byggjast á erindum og umræðuhópum en markmið málþingsins er að fá þverfaglegar umræður um landvörslu og náttúruvá frá ólíkum sjónarhornum. Hvar: Veröld – AuðarsalHvenær: 16. mars, 13-16Fundarstjóri: Katrín Oddsdóttir Dagskrá:– Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra– Kristín Jónsdóttir, Veðurstofu Íslands– Björn Ingi… Continue reading Málþing um náttúruvá og landvörslu
Author: Benedikt Traustason
Árshátíð 2024!
Landsins elskendur og hjartans bestu verðir! Nú er kominn tími til að pússa gönguskóna og stíma lopapeysuna, það er árshátíð í vændum, þann 16. mars! Í ár siglum við á ný mið og könnum áður óþekktar dýptir í Vivaldisalnum hjá knattspyrnudeild Gróttu, Suðurströnd 2-8 Seltjarnarnesi. Fordrykkur hefst kl. 19 og reiknað er með að borðhald… Continue reading Árshátíð 2024!
Könnun um náttúruvá og landvörslu
Nú ættu allir félagar í Landvarðafélaginu að hafa fengið senda könnun sem er hugsuð til þess að kortleggja betur stöðu landvarða í tengslum við náttúruvá og nýja náttúruverndar- og minjastofnun. Vinsamlegast svarið könnuninni í síðasta lagi 27. nóvember. Stefnt er á að niðurstöður hennar verði kynntar forsvarsmönnum stofnananna í desember. Bestu kveðjur,Stjórn Landvarðafélagsins
Vel heppnað afmælisbíó
Í tilefni af 47 ára afmæli Landvarðafélagsins bauð félagið í bíó á myndina Princess Mononoke. Myndin fjallar um átök skógarguða og mannsins sem gengur á auðlindir skógarins og heimili guðanna. Þrátt fyrir fantasíuelement myndarinnar eru skilaboðin skýr um mikilvægi nátttúruverndar. Yfir 30 sóttu viðburðinn og þökkum við þeim kærlega fyrir sem komu og fögnuðu með okkur… Continue reading Vel heppnað afmælisbíó
Umsögn um framtíð Vatnsfjarðar
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskaði eftir umsögn Landvarðafélags Íslands um mögulega affriðlýsingu Vatnsfjarðar til þess að þar mætti virkja. Í umsögn félagsins eru áformin harðlega gagnrýnd. Félagið telur málið illa undirbúið og geta skapað hættulegt fordæmi. Affriðlýsing Vatnsfjarðar myndi ekki aðeins grafa undan trausti alls almennings á friðlýsingum heldur vinna gegn markmiðum Íslands um verndun… Continue reading Umsögn um framtíð Vatnsfjarðar
Haustbjór og kynning á Force for Nature
Kæru landverðir! Næstkomandi föstudag, 13. október, ætlar Jamie McCallum að bjóða upp á kynningu á landvarðaappinu Force For Nature á Viðarstofu á KexHostel milli klukkan 20-21. Jamie er stofnandi og forstjóri fyrirtækisins Force For Nature, sem stuðlar að verndun náttúrunnar með því að styðja við landverði víðs vegar um heiminn. Að kynningunni lokinni er velkomið… Continue reading Haustbjór og kynning á Force for Nature
Frumvarp um náttúruverndar- og minjastofnun
Nú er umsagnarfresti um drög að frumvarpi um náttúruverndar- og minjastofnun lokið. Landvarðafélagið sendi inn umsögn við drögin sem félagar geta kynnt sér hér. Félagið mun áfram miðla upplýsingum um framvindu mála. Félagar geta kynnt sér drögin á samráðsgátt stjórnvalda.
Fræðsluganga og vorbjór
Kæru landverðir Nú er komið að fyrstu fræðslugöngu ársins sem haldin verður laugardaginn næsta 27. maí. Gengið verður um Gálgahraun á Álftanesi og mun Kári Kristjánsson leiða gönguna. Gangan hefst klukkan 13:30 á bílastæðinu við Gálgahraun. Þar sem nú er varptími biðjum við gesti um að skilja hunda eftir heima. Endilega meldið ykkur á viðburðinum sem er í landvarðahópnum.… Continue reading Fræðsluganga og vorbjór