Umsögn um framtíð Vatnsfjarðar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskaði eftir umsögn Landvarðafélags Íslands um mögulega affriðlýsingu Vatnsfjarðar til þess að þar mætti virkja.

Í umsögn félagsins eru áformin harðlega gagnrýnd. Félagið telur málið illa undirbúið og geta skapað hættulegt fordæmi.

Affriðlýsing Vatnsfjarðar myndi ekki aðeins grafa undan trausti alls almennings á friðlýsingum heldur vinna gegn markmiðum Íslands um verndun 30% land, strand og hafsvæða fyrir 2030 sem ráðuneytið samþykkti fyrir tæpu ári síðan í Montréal. Von félagsins stendur til þess að ráðuneytið sýni samþykktum markmiðum Íslands á alþjóðavísu meiri metnað en svo að ætla að grafa undan þeim á 11 mánuðum.

Nánar má lesa um afstöðu félagsins hér.