Þann 28. mars fór aðalfundur félagsins fram á Kex hostel og í streymi. Þar fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf og var þar kosin ný stjórn. Hana skipa:
- Benedikt Traustason – formaður og tengiliður við kjara- og launanefnd
- Erla Diljá Sæmundardóttir – varaformaður og tengiliður við alþjóðanefnd
- Guðrún Úlfarsdóttir – gjaldkeri
- Bjartey Unnur Stefánsdóttir – ritari
- Helga Hvanndal – tengiliður við fræðslu og skemmtinefnd
- Þórhallur Jóhannsson – varamaður
- Maríanna Óskarsdóttir – varamaður
Einnig var kosið í nefndir og skoðunarmenn reikninga
- Kjara- og launanefnd; Benedikt Traustason og Nína Aradóttir
- Fræðslu- og skemmtinefnd; Hlynur Aðalsteinsson, Elías Arnar Nínuson og Courtney Brooks.
- Alþjóðanefnd; Hrafnhildur Ævarsdóttir, Linda Björk Hallgrímsdóttir og Þórunn Sigþórsdóttir.
- Skoðunarmenn reikninga: Álfur Birkir Bjarnason og Sturla Jónsson
Við þökkum þeim sem láta af störfum kærlega fyrir vel unnin störf og hlökkum til að vinna áfram að hagsmunum landvarða á komandi ári.