Af vef umhverfisráðuneytis: Umhverfisráðherra boðar til VII. Umhverfisþings 14. október 2011 á Hótel Selfossi. Umhverfisþing fjallar að þessu sinni um náttúruvernd, m.a. verður kynnt hvítbók sem ætlað er að leggja grunn að nýjum náttúruverndarlögum. Í málstofum eftir hádegi verður fjallað um friðlýsingar og framkvæmd náttúruverndaráætlunar, vísindaleg viðmið fyrir náttúruvernd og gildi náttúruverndar fyrir útivist og… Continue reading Umhverfisþing 14. október 2011
Category: Fréttnæmt frá 2011
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2011
Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2011 verður haldinn á Veitingahúsinu Horninu (kjallara), Hafnarstræti 15, miðvikudaginn 6. apríl kl: 19:00. DagskráVenjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum félagsins1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá4. Lagabreytingar5. Ákvörðun félagsgjalda6. Kosning stjórnar7. Kosning í nefndir og kosning endurskoðenda8. Önnur mál
Verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð þann 28. mars sl. Á vef umhverfisráðuneytis kemur m.a. fram að Vatnajökulsþjóðgarður sé umfangsmesta verkefni á sviði náttúruverndar sem ráðist hefur verið í hérlendis en hann nær yfir 13% landsins og er stærsti þjóðgarður Evrópu. Stjórnunar- og verndaráætlunin felur í sér stefnu, markmið og framtíðarsýn þjóðgarðsins… Continue reading Verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð
Umhverfisstofnun auglýsir landvarðastörf sumarsins
Umhverfisstofnun auglýsir nú landvarðastörf sumarsins 2011 á Starfatorg.is og á vef sínum Umhverfisstofnun.is. Umsóknarfrestur er til 20. mars.
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir sumarstörf
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir sumarstörf á vefsíðu sinni www.vatnajokulsthjodgardur.is. Umsóknarfresturinn er til 4. mars.
Búsvæði fugla og tjarnarklukku friðlýst
Á vef Umhverfisstofnunar er sagt frá tveimur nýjum friðlýsingum. Friðlýsing búsvæðis fugla í Andakíl. Á alþjóðlega votlendisdaginn þann 2. febrúar sl. undirritaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra friðlýsingu búsvæðis fyrir fugla í Andakíl í Borgarfirði. Sveitarfélagið Borgarbyggð, Landbúnaðarháskóli Íslands og landeigendur 13 jarða í Andakíl – Hvítárvalla, Grímarsstaða, Heggsstaða, Báreksstaða, Vatnshamra, Ausu, Neðri-Hrepps, Innri-Skeljabrekku, Ytri-Skeljabrekku, Árdals, Grjóteyrar,… Continue reading Búsvæði fugla og tjarnarklukku friðlýst
Landvarðanámskeið hefst 17. febrúar
Af vef Umhverfisstofnunar: Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi. Námskeiðið er 110 tímar og gjald kr. 120.000. Námskeiðið hefst 17. febrúar og lýkur 20. mars n.k. Kennt er um helgar, milli 10 og 18, og á kvöldin á virkum dögum, milli 17 og 22. Einnig er fimm daga vettvangs- og verkefnaferð.… Continue reading Landvarðanámskeið hefst 17. febrúar
Erindi um Kríuna 18. janúar
Af vef Fuglaverndar: Hvers vegna er viðkomubrestur og fækkun í varpstofnun kría við Norður Atlantshaf?Freydís Vigfúsdóttir, líffræðingur og doktorsnemi í dýravistfræði, ætlar að kynna verkefni sem hún vinnur að um kríuna á fræðslufundi Fuglaverndar þriðjdaginn 18.janúar n.k. Freydís rannsakar varp á Snæfellsnesi en markmið rannsóknarinnar hefur verið að rannsaka ástæður víðtæks varpbrests sem hefur verið… Continue reading Erindi um Kríuna 18. janúar
Tillögur að breytingum á náttúruverndarlögum til umsagnar
Af vef umhverfisráðuneytis: Í umhverfisráðneytinu er nú unnið að heildarendurskoðun á lögum um náttúruvernd. Nú liggja fyrir tillögur að breytingum á þeim þáttum laganna sem brýnast þótti að bæta úr. Hægt er að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 21 janúar næstkomandi.Drög að frumvarpi til laga um breytingar á náttúruverndarlögum er nú opið til… Continue reading Tillögur að breytingum á náttúruverndarlögum til umsagnar