Landvarðanámskeið hefst 17. febrúar

Landverdir2009_300

Landverdir2009_300Af vef Umhverfisstofnunar:

Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi. Námskeiðið er 110 tímar og gjald kr. 120.000. Námskeiðið hefst 17. febrúar og lýkur 20. mars n.k. Kennt er um helgar, milli 10 og 18, og á kvöldin á virkum dögum, milli 17 og 22. Einnig er fimm daga vettvangs- og verkefnaferð.

Námskeiðið er kennt bæði í fjar- og staðnámi sem gerir fólki hvar sem er af landinu kleift að taka þátt. Fjarnemar eru skyldugir til að taka hluta námskeiðsins í staðnámi. Staðnámið fer fram húsnæði Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík.

Umsóknum skal skilað til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 7. febrúar 2011. Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir  árið 1991 eða fyrr. Lágmarksfjöldi er skilyrði þess að námskeiðið verði haldið.

Nánari upplýsingar veitir Jón Björnsson hjá Umhverfisstofnun.

Sjá dagskrá og nánari upplýsingar á vef Umhverfisstofnunar.