HaustÝlir kominn út og haustlitaferð í vændum

Nú er skammt stórra högga á milli, gott fólk, og hér með tilkynnist að hausthefti fréttabréfsins ÝLIS er komið út.

Meðal efnis:

  • Goðsögur á stjarnhimni, grein eftir Björk Bjarnadóttur
  • Mín skoðun, eftir Dagnýju Indriðadóttur
  • Viðtal við Elísabetu Kristjánsdóttur, formann L.Í.
  • Tilkynningar frá Labbakútadeild og um heimsþing Alþjóðlegu landvarðasamtakanna í Skotlandi í júní 2006
  • Og síðast en ekki síst: Tilkynning um haustlitaferð í Laka 8. október nk.

Nælið ykkur í nýja Ýlinn hér á landvarðvefnum, prentið hann út, lesið og njótið.