Landsins elskendur og hjartans bestu verðir! Nú er kominn tími til að pússa gönguskóna og stíma lopapeysuna, það er árshátíð í vændum, þann 16. mars!
Í ár siglum við á ný mið og könnum áður óþekktar dýptir í Vivaldisalnum hjá knattspyrnudeild Gróttu, Suðurströnd 2-8 Seltjarnarnesi. Fordrykkur hefst kl. 19 og reiknað er með að borðhald hefjist kl. 20. Ekki er hægt að kaupa drykki á staðnum, komið því með eigin drykki. Eftir matinn verða skemmtiatriði, happdrætti og svo endar kvöldið á sjómannavalsi og almennu sporðasprikli á dansgólfinu! Courtney og Friðgeir verða veislustjórar og skemmtiatriði eru meira en velkomin!
Þema kvöldsins er UNDUR UNDIRDJÚPSINS
Komið því klædd hafblá eins og öldurnar, seiðandi eins og hafmeyjur eða sæt eins og selir. Sumarið nálgast óðfluga þar sem landið mun eiga hug okkar allan — nýtum því tækifærið þetta kvöld og stígum ölduna saman!
Verð fyrir félaga: 6.900,-
Fyrir aðra: 7.900,-
kt. 460684-0649
0526-26-431785
Skráningu lýkur 11. mars kl.12
Greiða skráningargjald þarf fyrir þann tíma!
Skráning fer fram hér!
https://forms.gle/zHFFi9p8z5jELwbk9
Innifalið: fordrykkur, góður matur, happdrætti, skemmtiatriði, dansiball og stanslaust stuð!
stjórn og skemmtinefnd