Landvarðafélagið minnir á haustferðina um næstu helgi. Kári Kristjánsson, landvörður og sérfræðingur hjá UST, tekur á móti hópnum í Lakagígum.
Athugið að þetta er tveggja daga ferð. Lagt verður af stað laugardaginn 8. okt. kl. 8:00 frá Select á Vesturlandsvegi og stefnt að því að koma aftur í borgina um kvöldmatarleytið á sunnudag.
Útbúnaður: Góður fatnaður, svefnpoki, tannbursti og góða skapið. Makar sérstaklega boðnir velkomnir.
Missið ekki af þessari einstöku ferð með ævintýralegu ívafi!!!