Fundarstaður: Lynghagi 4, Reykjavík.
Mætt: Kristín Guðnadóttir, Sveinn Klausen, Elísabet Kristjánsdóttir, Dagmar Sævaldsdóttir og Rebekka Þráinsdóttir.
Dagskrá og umræður:
- Farið yfir fundargerð og mál síðasta stjórnarfundar. Fundargerðin samþykkt.
- Ráðningarmál í Skaftafelli og á Mývatni. Athuga með að senda bréf til Umhverfisstofnunar og óska svara þar að lútandi.
- Framtíð landvarðavefsins rædd því Sveinn vefstjóri hefur alfarið séð um að setja allt á vefinn, en hann biður nú um lausn frá því embætti. Sveinn fær fullt samþykki stjórnar og umboð til að kanna kaup á lausn. Einhver stofnkostnaður verður en hann kemur betur í ljós síðar. Stefnt er að því að hafa landvarðasíðuna sem best úr garði gerða.
- Stefna félagsins í náttúruverndarmálum rædd og ákveðið að leggja til fyrir næsta aðalfund að stofnuð verði sérstök nefnd til að sinna málaflokknum.
- Taka þarf ákvörðun um hvaða atriði verða tekin fyrir á landvarðaþingi í vor. Athuga að fá fyrirlesara fyrir þingið. Styrki fyrir þingið á að kanna á sem flestum stöðum. Stjórnin telur náttúrutúlkun og annað henni tengt mestu þörfina. Rætt var hvort hægt verði að fá fyrirlesara í umhverfistúlkun frá Bandaríkjunum en fallið var frá því vegna kostnaðar. Rætt um mögulega dagsetningu landvarðaþings og aðalfundar sem talið er að fari sem best saman. Athuga með að veita viðurkenningar.
- Rætt var um námskeið um bílaviðgerðir og reddingar en ef slíkrar þekkingar er krafist í starfi ber í raun vinnuveitanda að halda viðeigandi námskeið.
Fleira var ekki rætt.
Ritari: Dagmar Sævaldsdóttir