Margt skemmtilegt í boði á Alþjóðadegi Landvarða 31. júlí

Á morgun miðvikudaginn 31. júlí er Alþjóðadagur Landvarða. Alþjóðlega Landvarðadeginum er ætlað að auka þekkingu og stuðning við störf landvarða um allan heim. En störf landvarða eru mjög fjölbreytt og misjöfn en miðast öll við að vernda náttúru og lífríki hvers svæðis.

Landverðir um allt land munu halda upp á daginn með fjölbreyttri dagskrá. Við hvetjum alla til að kynna sér dagskrá landvarða og athuga hvort ekki sé eitthvað skemmtilegt að finna í þínu nágrenni á morgun.

Vesturland og Vestfirðir

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull (11:00)
Ganga á Djúpalónsandi. Lagt af stað frá bílastæðinu við Djúpalónsand kl. 11:00 og tekur gangan um 1,5 klst. Nánari upplýsingar í síma 436-6888.

Friðlandið Vatnsfirði, Vesturbyggð ( 13:00)
Fetað í fótspor Flóka Vilgerðarsonar og gengið upp á Lónfell. Lagt af stað frá Flókatóftum við höfnina á Brjánslæk kl. 13:00 og tekur gangan um 4. klst. Gangan er meðal erfið, hækkun um 300 metrar, nokkuð stórgrýtt á köflum og mikilvægt að vera í góðum skóm. Nánari upplýsingar í síma 837-7011.

Norðurland

Verndarsvæði Mývatns og Laxá (20:00)
Gengið verður frá útsýnispalli við Kálfastrandarstrípa austur fyrir Birtingatjörn og þaðan hring um Klasa. Gangan hefst kl. 20:00 og gengið verður um 4 km sem tekur um 2 klst.

Ásbyrgi (11:00 og 20:00)
11:00 – 11:45
Barnastund, hressir krakkar á aldrinum 6-12 ára geta rannsakað náttúruna með landverði og farið í skemmtilega leiki. Hittumst kát við stóra snyrtihúsið á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi.

20:00
Kvöldrölt með landverði,  lagt er af stað frá stóra snyrtihúsinu á tjaldsvæðinu. 

Austurland
Snæfellsstofa (14:00 – 14:45)
Barnastund, hressir krakkar á aldrinum 6-12 ára geta rannsakað náttúruna með landverði og farið í skemmtilega leiki. Hittumst kát í móttöku Snæfellsstofu.

Snæfell (Snæfellsskáli 12:30)
Í Snæfelli er boðið upp á fræðslugöngu á slóðum Snæfellsþjófanna. Mæting í Snæfellsskála kl 12:30 og mun gangan hefjast kl 13:00. Gengið verður í Þjófadali, sunnan við Snæfell. Áætlað er að gangan taki 4 klukkustundir með stoppum. Að göngu lokinni veður boðið til te-athafnar í skálanum. Frekari upplýsingar hjá Snæfellsstofu í síma 470-0840 eða hjá landvörðum í Snæfelli 842-4367.

Suðurland

Þjórsárdalur
Fræðsluganga í Gjána – Hvað vex undir birkinu. Gengið inn Gjána vestanmegin Rauðár. Gangan hefst við áningasvæðið við göngustíginn upp að Stöng kl. 13:00 og tekur um 1 klst. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna. Nánari upplýsingar í síma 822-4034.

Fjaðrárgljúfur,Skaftárhreppi
Landverðir Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bjóða í göngu um brúnir

Hrauneyjar Rangárþingi Ytra
Landverðir Umhverfisstofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs bjóða gestum velkomna á sýningu í Hrauneyjum þar sem hægt er að fá allar upplýsingar um náttúruverndarsvæði á miðhálendinu. Einnig ætla landverðir að bjóða heim í Ferjukot, skála landvarða í Haldi milli kl. 14:00 og 16:00 þar sem boðið verður upp á kaffi og kleinur. Nánari upplýsingar í síma 842-4376.

Þingvallaþjóðgarður (10:00 og 15:00)
Fræðslugöngur með landverði verðir í Þjóðgarðinum á Þingvöllum tvisvar sú fyrri hefst kl. 10:00 og sú seinni 15:00.

Hálendið
Friðland að Fjallabaki (14:00)
Lagt af stað frá upplýsingabás í Landmannalaugum. Landverðir  munu bjóða gestum í göngu um Laugahraun í Landmannalaugum og fræða þá um störf landvarða og náttúru og sögu friðlandsins. Gangan byrjar kl. 14:00 og tekur um 2,5 klst. og er miðlung létt. Nánari upplýsingar í síma 822-4083.

Lakagígar (12:00)
Fegurð og hörmungar, áhrif Skaftárelda, lagt af stað frá bílastæði við Laka. Fræðslu gangan stendur yfir í um eina klukkustund.

Eldgjá (12:00)
Hvernig stækkar Ísland?  Lagt af stað frá bílastæði í Eldgjá. Fræðslu gangan stendur yfir í um eina klukkustund.

Nýidalur (10:00)
Saga & víðerni, lagt af stað frá skálum FÍ. Fræðslu gangan stendur yfir í um eina klukkustund.

Drekagil (15:00-17:00, 18:00 – 19:00)
15:00 – 17:00
Opið hús hjá landvörðum í Drekagili – spurt og svarað um landvörslu og hvað sem þú vilt vita um svæðið, undir ljúffengu fjallakaffi og pönnsum!
18:00 – 19:00
Hálendisjóga kl 18-19: Landverðir bjóða gestum í kyngimagnað hálendisjóga á vikrinum við Drekagil. Hvaðan kom hann og hvernig mátast hann við jógaæfingar?

Askja (13:00)
Landvörður veitir gestum innsýn í landvörslu á svæðinu, um leið og fjallað er um jarðfræði Öskju og Dyngjufjalla og örlagaríkum heimsóknum manna í Öskju. Gengið er að Víti (2,3 km) og tekur rúma klukkustund. Lagt af stað kl. 13 frá bílastæði í Vikraborgum (20 mínútna akstur frá Drekagili).

Holuhraun (10:00)
Landvörður veitir gestum innsýn í lagningu gönguleiða um nýtt hraun, hvers vegna og hvernig? Holuhraun myndaðist í stærsta hraungosi á Íslandi í 230 ár. Fjallað er um sambýlið við Bárðarbungu, sem nú síðast gat af sér magnaðar jarðmyndanir og úfið hraunflæmi Holuhrauns. Hraunið lúrir sunnan Dyngjufjalla, en tekur enn miklum breytingum síkvikrar náttúru svæðisins, þar á meðal ferðamanna! Gengin er 800 m stikuð leið um hraunið og tekur um 45 mínútur. Lagt af stað kl. 10 frá bílastæði við norðurjaðar hraunsins (40 mínútna akstur frá Drekagili). 

Herðubreiðalindir (9:00)
Landvörður fjallar um breytingu svæðis með tilkomu friðlýsingar, en í sumar urðu Herðubreiðarlindir hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Í aldaraðir hafa Herðubreiðarlindir verið griðastaður lífs mitt í svartri hraunbreiðu Ódáðahrauns. Gengið er um lindirnar gróðursælu og rýnt í hið smáa í náttúrunni sem og öflin sem mynduðu hraunið, lindirnar og Herðubreið. Gangan hefst við Þorsteinsskála í Herðubreiðarlindum og tekur um 1 klst.

Krepputunga (20:00)
Krepputunga var lengi vel með óaðgengilegri svæðum landsins, enda afmörkuð af Vatnajökli sjálfum og tveimur vatnsmiklum jökulám sem frá honum renna. Landslagið mótast af víðáttumiklu hrauni, margslípuðu af flóðum jökulánna, sem hvílir á köflum undir ljósri vikurbreiðu frá Öskjugosinu 1875. Landvörður býður gestum í gönguferð um þetta sérstaka landslag þar sem rýnt verður í sögu og jarðfræði svæðisins. Gangan hefst við veginn 7 km suður frá Kreppubrú og tekur rúman klukkutíma.

Kverkfjöll (10:00)
Landvörður gengur með gestum á Virkisfell frá Sigurðarskála (2,1 km) og fræðir þá um jarðfræði svæðisins og hlutverk jökulsins í landmótun. Sérstök áhersla verður lögð á rannsóknir vísindamanna á svæðinu og samstarf landvarða og vísindamanna, m.a. með tilliti til náttúruvöktunar. Gangan hefst klukkan 10 og tekur um einn og hálfan klukkutíma. Boðið verður upp á kaffi í Sigurðarskála að lokinni göngu.

Hvannalindir (13:00)
Gengið er með landverði frá bílastæðinu við Lindahraun að Kreppuþröng, þar sem jökulsáin Kreppa treður sér um örmjótt gil. Landvörður fræðir gesti um náttúru svæðisins og segir um leið frá störfum landvarða á svæðinu, með sérstakri áherslu á fræðsluhlutverkið og upplýsingagjöf. Gangan tekur tvær klukkustundir.
Hafið samband við landvörð í Hvannalindum fyrir frekari upplýsingar í síma 8424368.

https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/is/fraedsla/althjoddagur-landvarda-31-juli

https://www.ust.is/umhverfisstofnun/frettir/stok-frett/2019/07/26/Althjodadagur-landvarda/?fbclid=IwAR1X9_C4c2Xv_bo3EQwtuSCw-8N0ZZ3JQuo-zttFHM-A9YyipJuJ2N_0jaY