Eins og flestir vita er aðeins þrennt sem getur bjargað geðheilsunni í desembermánuði:
• Vera í jólaskapi – sama hvað á dynur
• Gera mikið af því að vera slakur og hitta góða félaga
• Sötra Jólaglögg – að hætti LANDVARÐARINS!!!
JÓLAGLÖGG landvarða býður upp á allt þetta og gott betur á einu bretti!!!
Við ætlum að hittast laugardaginn 20. desember kl. 21:00 að Tómasarhaga 40
(dyrabjalla „Hanna Kata og Guðrún“).
Sjá nánar í tilkynningu frá Grýlu og Leppalúða.