Landverðir, takið frá laugardaginn 14. október!
Það er komið að hinni sívinsælu haustferð landvarða. Að þessu sinni verður skundað á Þingvöll þar sem boðið verður upp á sérstaka fræðslugöngu um urriðann í Öxará, kl. 13:00 laugardaginn 14. október.
Urriðastofninn í Þingvallavatni er að mörgu leyti einstakur, m.a. fyrir stærð og fjölda. Hann hefur þróast í algjörri einangrun frá því við lok ísaldar og þess vegna greinst í ýmsa undirstofna. Frekari upplýsingar um urriðann má finna hér.
Að urriðagöngunni lokinni verður gengið um gamlar þjóðleiðir í þjóðgarðinum, að Vatnskoti og Skógarkoti, sem er ágætis hringur og frekar auðveld ganga.
Munið að hafa með ykkur nesti og góða skó!
Þátttaka tilkynnist á netfangið: laufey10@yahoo.com eða í síma 868 2959. Þau sem geta verið á bíl vinsamlegast látið vita af því svo hægt sé að sameina í bíla.
Upplýsingasíða um Þingvallaurriðann: http://www.thingvellir.is/nattura/fiskurinn/urridinn/