Fræðslu- og skemmtiganga við Vífilsstaðavatn

Næsta ,,fræðslu-og skemmti” gangan sem Landvarðafélagið stendur fyrir verður við Vífilsstaðavatn næstkomandi fimmtudag (27. feb). Markmiðið með göngnunum er að vekja athygli á friðlýstum svæðum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Mæting á bílstæðið við Vífilsstaðvatn kl. 17. Gangan mun taka ca. 1 -1,5 klst. Sniðugt að hafa innanbæjarbrodda með til öryggis. Gangan er auðveld og ætti að vera við hæfi allra. Endum síðan annað hvort í sundi eða á kaffihúsi eftir stemmingu hópsins.
Vífilsstaðavatn og nágrenni var friðlýst árið 2007. Friðlýsingunni er ætlað að stuðla að varðveislu og viðhaldi náttúrulegs ástands vatnsins og styrkja verndun tegunda og samfélagsgerðar með sérstæðum stofnum bleikju, urriða, áls og hornsíla í vatninu. Töluvert af andfuglum verpa við vatnið og mófuglar um­hverfis það. Markmið með verndun nærsvæðis vatnsins er að tryggja eðlilegt grunnvatnsstreymi til þess og viðhalda náttúrulegu gróðurfari svæðisins. Enn fremur er það markmið friðlýsingarinnar að treysta útivistar-, rannsókna- og fræðslu­gildi svæðisins.Nánar má lesa um friðlýsinguna hér:https://www.ust.is/nattura/natturuverndarsvaedi/fridlyst-svaedi/sudvesturland/vifilsstadavatn-gardabae/
Allir eru velkomnir með, hvort sem þið eruð landverðir eða ekki:)
Við hvetjum einnig landverði í öðrum landshlutum að skipuleggja göngur í sínu nærumhverfi og endilega hafið samband við okkur ef þið viljið auglýsa þær í gegnum okkur 🙂