Dagur íslenskrar náttúru

 Frá 2010 hefur 16. september verið tileinkaður íslenskri náttúru en dagurinn er afmælisdagur Ómars Ragnarssonar frétta- og þáttagerðarmanns sem hefur kynnt náttúruna á sinn einstaka hátt fyrir landi og þjóð.

Landvarðafélagið hvetur alla til allskonar útivistar í dag til að heimsækja náttúruna og óska henni til hamingju með daginn. Hér á Íslandi erum við enn svo lánsöm að þurfa ekki að fara langt til njóta náttúru eins og meðfylgjandi mynd af Rauðhólum sýnir. En mörg frábær útivistarsvæði eru í og við höfuðborgarsvæðið og það sama á við um landið allt.

Á þessum degi er áhugavert að velta fyrir sér sambandi manns og náttúru. En þar geta skrif Páls Skúlasonar veitt margþætta innsýn. Í bókinni  Náttúrupælingar er að finna safn helstu greina hans um heimspeki náttúrunnar og setur Páll nýtingu og verndun náttúrunnar þar í áhugaverð samhengi. Til að mynda veltir hann því upp hvort að náttúran sé orðin að tæki í hugum okkar og þar af leiðandi sjáum við hana ekki öðruvísi nema með nýtingu í huga. Tæki nýtast til ákveðinna hluta þar til að þau gera það ekki og maðurinn á það til að veita tækjum aðeins athygli þegar þau t.d. virka ekki lengur. Páll bendir glögglega á að náttúran er hugtak sem við gefum merkingu og er þar af leiðandi afurð okkar ímyndunnar, því skiptir viðhorfið miklu máli þegar kemur að nýtingu hennar. Ef við lítum aðeins á náttúruna sem auðlind eða efni til að nota þá verður hún viðfang mannsins til að sigrast á og fullnýta. Í stað þess að viðurkenna og virða hana sem sjálfstætt afl.

Stjórn landvarðafélagsins óskar náttúrunni, félagsmönnum og öllum til hamingju með daginn og vonum að allir njóti dagsins með náttúrunni. 

Comments are closed.