Fundarstaður: Ari í Ögri.
Á fundinn mættu: Kristín Guðnadóttir formaður, Sveinn Klausen gjaldkeri, Elísabet Kristjánsdóttir og Áki Jónsson meðstjórnendur, Rebekka Þráinsdóttir varamaður. Fundarritari var Rebekka Þráinsdóttir.
Dagskrá fundarins og umræður:
- Kjaranefnd – nýir kjarasamningar
Ekki er annað vitað en að ánægja sé með samningana, ekki hafa þó allir haft tækifæri til að kynna sér þá. Rætt um að birta þá á landverdir.is með útskýringum. - Fundir stjórnar og trúnaðarmanna með UST
Haldið verður áfram á sömu braut. Það hefur komið fram að UST vill frá landverði í vinnuhóp um húsnæðismál landvarða. Samkomulag varð um að biðja Kára að verða fulltrúi félagsins. - Menntamál landvarða
Sú tillaga komi frá UST að landverðir stofni vinnuhóp í tengslum við menntun landvarða. Ýmsar uppástungur varðandi hverjir skuli skipa þann hóp. Verið er að vinna í málnu. - Fundur með nýjum umhverfisráðherra
Takist að fá fund með honum á m.a. að ræða eftirfarandi:- Mývatn – landvarsla þar.
- Þingvallaþjóðgarður vs. öllur önnur friðlönd og þjóðgarðar á landinu með tilliti til fjármagns.
- Fjölgun landvarða.
- Lengja það tímabil sem landverðir eru starfandi á ári hverju.
- Gullfoss og Geysir – þetta eru ein fjölförnustu svæði landsins en þeim er þó tæpast nógu vel sinnt hvað landvörslu snertir.
- Landvarðaþing
Enn eru til peningar eftir síðasta „þing“ sem fór vel í fólk. Stefnt er að því að blása til nýs þings, og kallað var eftir tillögum um viðfangsefni. Nefnt var m.a.:- Bílanáskeið og reddingar.
- Barnastarf.
- Félagsstarf – vetrarstarf
- Elísabet stakk upp á að stofna gönguhóp til að rífa upp stemmninguna og koma blóði og anda á hreyfingu og flug. Elísabet mun verða forystusauður í þeim hópi og fá með sér vaska verði. Stefnt á að ganga einu sinni til tvisvar í mánuði.
- Skemmtinefnd mun svo sjá um haustfagnað, jólafagnað og fræðslukvöld.