Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu sem haldið verður í húsnæði stofnunarinnar, Suðurlandsbraut 24, í febrúar og mars n.k. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi og forgang um landvörslustörf á vegum Umhverfisstofnunar. Námskeiðsgjald er kr. 65.000.-. Námskeiðið er háð því að viðunandi þátttaka fáist.
Umsóknum skal skilað bréflega til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 1. febrúar 2008. Í umsókn komi fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir 1988 eða fyrr.
Aðallega er kennt um helgar og á kvöldin á virkum dögum og er lengd námskeiðsins í heild sinni 120 klst.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur A. Jónsson hjá Umhverfisstofnun, olafurj@ust.is
Sjá stundatöflu hér fyrir neðan:
Dagskrá landvarðanámskeiðs 2008 – Stundaskrá
Dags: |
Efni og helstu aðferðir: |
Lengd. |
Tími. |
1. lota 7-10 febrúar – 30 klst. |
|||
7. feb. | Kynning á námskeiði | 1 klst. | 17-18 |
7. feb. | Helstu störf landvarða. Fyrirlestrar, umræður og verkefni | 4 klst. | 18-22 |
8. feb. | Náttúruvernd, saga, hugmyndafræði. Friðlýsingar, flokkar, einstök svæði m. sérstakt gildi . Fyrirlestrar, umræður og verkefni. | 5 klst. | 17-22 |
9. feb. | Umhverfistúlkun, hugmyndafræði og grundvallaratriði. Fyrirlestrar og verkefni. | 3 klst. | 9-12 |
9. feb. | Menningarminjar. Gildi, verndun. Áhrifavaldar. einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu. Fyrirlestrar og vettvangsferð eftir hádegi. | 6 klst. | 13-19 |
10. feb. | Náttúrufræði. Grunnþættir, hugtök, gildi, verndun. Áhrifavaldar, þolmörk, aðferðir. Einstakir þættir – greining sérstöður og nýting við fræðslu. Fyrirlestur | 3 klst. | 9-12 |
10. feb. | Vettvangsferð í nágrenni Reykjavíkur. Kynning á aðstæðum, útivinna og verkefni. Frekari upplýsingar koma síðar. | 6 klst. | 12:30-18:30 |
|
|||
2. lota 14-15 febrúar – 10 klst. |
|||
14. feb. | Mannleg samskipti, almennt um samskipti, sjálfsmynd, hindranir, framkoma, ímynd og fleira. Að taka á erfiðum málum. Fyrirlestrar, umræður og verkefni. | 5 klst. | 17-22 |
15. feb. | Gestir friðlýstra svæða. Ferðamennska, áhrifaþættir framtíðar, ástæða heimsókna á svæði, sýn gesta, þolmörk og viðhorf. Mismunandi hópar og þarfir gesta. | 5 klst. | 17-22 |
|
|||
3. lota 20-24 febrúar – 40 klst. |
|||
20. feb. | Farið í Skaftafell | 4 klst. | |
21. feb. | Þemaumhverfistúlkun | 10 klst. | |
22. feb. | Umhverfistúlkun æfingar. Persónuleg í gönguferðum og gestastofu | 10 klst. | |
23. feb. | Sama og 22. feb. | 10 klst. | |
24. feb. | Lok umhverfistúlkunar í Skaftafelli og farið heim | 6 klst. | |
|
|
|
|
4. lota 6-7 mars – 10 klst. |
|||
6. mars | Stjórnsýsla umhverfismála. UST, hlutverk og staða, verkefni og fleira. Vatnajökulsþjóðgarður, hlutverk, staða og verkefni. Þingvallanefnd, hlutverk, staða og verkefni. Sveitarfélög og aðrir sem koma að rekstri og umsjón. Lög og reglugerðir. Samstarfsaðilar erlendis. Alþjóðasamningar. Náttúruverndaráætlun. Fyrirlestrar og umræður. | 5 klst. | 17-22 |
7. mars | Öryggismál. Hlutverk landvarða, boðleiðir, eigið öryggi, öryggi gesta, að þekkja svæðið sitt. Öryggisgreining og öryggisáætlun. Gerð öryggisáætlunar. Hálendisgæslan. Fyrirlestrar, umræður og hópverkefni. | 5 klst. | 17-22 |
|
|||
5. lota 13-16 mars – 30 klst. |
|||
13. mars | Fræðsla. Gerð náttúru- og sögustíga. | 5 klst. | 17-22 |
14. mars | Fræðsla. Frh. Náttúru og sögustígar. Fræðsluskilti. | 5 klst. | 17-22 |
15. mars | Göngustígagerð. Vettvangsferð | 10 klst. | 9-19 |
16. mars | Verndaráætlun, stefnumörkun. Hvað er og fyrir hverja? Hagsmunaaðilar. Samráð. Stjórntæki. Fyrirlestrar og vettvangsferð | 10 klst. | 9-17 |
16. mars | Lok námskeiðs | 2 klst. | 18-20 |