Landvarðanámskeið Umhverfisstofnunar 2019

Af síðu Umhverfisstofnunar:

 

Landvarðarnámskeið 2019

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið í febrúar 2019.  Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins.  Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 31. janúar og lýkur 24. febrúar  Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu en kennarar koma jafnframt frá öðrum þjóðgörðum, Minjastofnun og víðar að.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning

Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Kristín Ósk Jónasdóttir í síma 591 2000 eða á netfanginu kristinosk@ust.is  Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Hámarksfjöldi nemenda á landvarðarnámskeiði eru 32. Skráð er á námskeiðið eftir röð umsókna. Lágmarksfjöldi nemenda er 25 og fellur námskeiðið niður ef tilskilinn fjöldi næst ekki. Skráningafrestur er til  15. janúar 2019.

 

Megin umfjöllunarefni námskeiðsins er:

  • Landverðir, helstu störf
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Náttúruvernd, verkfærin okkar
  • Vinnustaður landvarða
  • Öryggisfræðsla