Í tilefni af 40 ára afmæli Landvarðafélags Íslands heldur félagið ráðstefnu 4.maí næstkomandi og er aðgangur ókeypis og öllum opin. Í hádegishléi býðst ráðstefnugestum að kaupa mat og er verðið 2000 kr fyrir félagsmenn en 2500 kr fyrir aðra gesti.
Ráðstefnustjóri: Hrafnhildur Ævarsdóttir, landvörður
Húsið opnar og skráning 9:00
Dagskrá hefst kl. 9.30
Dagskrá:
9:30 – Linda Björk Hallgrímsdóttir formaður félagsins setur ráðstefnuna (10 mín)
9:40 – Fyrrverandi formaður Landvarðafélagsins – Sigríður Ingólfsdóttir (30 mín)
10:10 – Starfandi landverðir – Hákon, Kári, Katrín (30 mín)
10:40 – Samskipti – Sara Hrund Signýjar (20 mín)
HLÉ (15 mín)
11:15 – Vegalandvarsla: – Hrönn Guðmundsdóttir (20 mín)
11:35 – Uppruni, þróun og einkenni íslenska lífríkisins – Snorri Baldursson (20 mín)
11:55- Landverðir – ábyrgðin að vera góð fyrirmynd – Snjólaug Ólafsdóttir
HÁDEGISHLÉ Kl. 12:15-13.15
Ljúfir tónar
Ráðstefnugestir velja hvað málstofu/vinnustofur þeir vilja sækja:
Málstofa/Vinnustofa Kl. 13:15-14:15
Kjaramál. Kjarnefnd stýrir umræðum
Endurmenntun Landvarða (Jón Björnsson) -Þróun Landvarðanámskeiða og hvert stefnir
Vinnustofa Kl. 14:30-16:00
Haldið utan dyra:
Náttúrutúlkun Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir
Útieldun – Ásta Bjarney
Skráning fer fram hér og lýkur 1. maí: Skráning
Ráðstefnan fer fram í veislusalnum í Hraunbyrgi, Hjallabraut 51, 220 Hafnarfirði (við Víðistaðatún)