Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2016

Aðalfundur Landvarðafélags Íslands 2016

verður haldinn á Café Meskí, Fákafeni 8 108 Reykjavík, fimmtudaginn 31. mars kl: 19:00.

Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf samkv. lögum félagsins
1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar og umræður um hana
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram og umræður um þá
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Kosning stjórnar
7. Kosning í nefndir og kosning endurskoðenda
8. Önnur mál

Í fundarhléi verða veitingar í boði Landvarðafélagsins ásamt kaffi/te, aðrir drykkir þó á kostnað hvers og eins.

Eftir fundinn mun Steinar Kaldal, verkefnisstjóri hálendisverkefnis Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Ísland, koma og segja okkur frá verkefninu um Miðhálendisþjóðgarðinn.

Félagar eru hvattir til að mæta!                                              
Stjórnin