Vegna málflutnings framkvæmdarstjóra Vatnajökulsþjóðgarðs

Landvarðafélag Íslands harmar málflutning framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem nýr stofnanasamningur er gerður að blóraböggli fyrir fjármálahalla stofnunarinnar. Telja landverðir að sér vegið með þessum málflutningi, sér í lagi þar sem landverðir teljast ekki til hálauna fólks.

Seinasti stofnanasamningur var gerður árið 2010 og skv. 11. grein kjarasamninga var löngu komin tími á að endurskoðun færi fram. Auk þess má benda á að Vatnajökulsþjóðgarður skar niður í landvörslu til að mæta auknum launakostnaði síðasta sumar. Það þýddi að minni landvarsla var í Vatnajökulsþjóðgarði síðasta sumar þrátt fyrir áframhaldandi fjölgun ferðamanna.

Stofnunin getur ekki heldur skýlt sér á bak við dóm um fjarvirstaruppbót starfsmanna í óbyggðum. Sá dómur féll árið 2015 og mátti stofnunin búast við því að þurfa að greiða laun aftur í tímann. Enda trúum við því að stofnun á borð við Vatnajökulsþjóðgarð sé öll að vilja gerð að fara eftir kjarasamningum.

Stjórn Landvarðafélags Íslands