Hlutverk félagsins er að:
- Annast kjara og hagsmunamál landvarða.
- Taka skýra afstöðu í náttúruverndarmálum á Íslandi t.d. með ályktunum um málefni líðandi stundar.
- Stuðla að fræðslu og símenntun landvarða. Landvarðafélagið leggur áherslu á samstarf með stofnunum og félagasamtökum við fræðslu og símenntun landvarða.
- Skapa vettvang sem sameinar landverði. Þetta er m.a. gert með skemmtunum og með því að efla samstarf við önnur félagasamtök.
- Taka þátt í alþjóðasamstarfi landvarða og styrkja landverði til að vera rödd íslenskrar landvörslu á erlendum vettvangi.
- Kynna stefnu og starfsemi félagsins ásamt því að kynna starf landvarða út á við.
Stefna 2022-2024